Ágúst Björgvinsson fer með Valskonur til Hveragerðis og mætir þar sínu gamla liði Hamri í undanúrslitum Powerade-bikarsins í körfuknattleik.
Í herbúðum Vals er auk þess Jaleesa Butler sem áður lék með Hamri. Lið Hamars er nú í 1. deild en er þar í efsta sæti og líklegt til þess að endurheimta sæti sitt í úrvalsdeildinni.
„Ég er mjög spenntur fyrir því að fara í Hveragerði og spila svona leik. Það verður örugglega rafmögnuð stemning,“ sagði Ágúst meðal annars við mbl.is í dag.