Kári: Hef trú á skotinu mínu

Hinn 16 ára gamli Kári Jónsson fór á kostum í stórsigri Hauka, 113:87, í 3. umferð Dominos-deild karla í körfubolta í kvöld. Kári hitti úr öllum sex þriggja stiga skotum sínum og fjórum af fimm tveggja stiga skotum. Alls skoraði hann 26 stig.

„Þetta eru mín skot, ég á alltaf að hitta úr þessu,“ sagði Kári við mbl.is eftir leikinn en var þetta svona auðvelt?

„Nei, þetta var ekki svo auðvelt en ég hef trú á skotinu mínu. Strákarnir fundu mig mjög frían sem var mjög gott.“

„Við spiluðum mjög fína vörn mestallan leikinn. Hún byrjaði ekki vel en þegar vörnin fór í gang fór að ganga betur hjá okkur.“

Allt viðtalið við Kára má sjá í myndbandinu hér að ofan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka