New York Knicks vann í nótt sinn fjórða leik í röð í NBA-deildinni í körfuknattleik þegar liðið lagði Cleveland, 117:86, á heimavelli. Carmelo Anthony og Tim hardaway skoruðu 29 stig hvor fyrir Knicks-liðið sem virðist vera að ná sér á strik.
Kyrie Irwing var með 24 stig og Dion Waiters 21 fyrir Cleveland-liðið. Ekki stóð steinn yfir steini í vörn gestanna í þessum leik.
Tveir leikir til viðbótar voru í NBA-deildinni í nótt. Phoenix lagði Indiana, 102:94, og Golden State vann LA Clippers, 111:92.