Hrannar ráðinn þjálfari danska landsliðsins

Hrannar Hólm.
Hrannar Hólm. Ljósmynd/SISU Basketball

Hrannar Hólm hefur verið ráðinn þjálfari danska kvennalandsliðsins í körfuknattleik til næstu þriggja ára.

Hrannar hefur gert það gott með danska kvennaliðið SISU en undir hans stjórn hefur félagið orðið tvöfaldur meistari í Danmörku undanfarin fjögur ár og á dögunum var hann útnefndur þjálfari ársins í dönsku úrvalsdeildinni annað árið í röð.

„Ég hlakka mjög til þess að taka þetta verkefni af mér. Það eru margir hæfileikaríkir leikmenn til staðar og það verður áhugavert að sjá hvernig liðið stendur sig í leikjum á móti Austurríki og Íslandi í júlí,“ segir Hrannar Hólm á vef danska körfuknattleikssambandsins.

Hrannar er reyndur þjálfari sem hefur meðal annars þjálfað karlalið KR, Njarðvíkur og Þórs á Akureyri. Hann hefur frá árinu 2012 starfað sem íþróttastjóri danska körfuknattleikssambandsins samhliða því að þjálfa SISU.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert