Njarðvíkingurinn Logi Gunnarsson var sáttur með leik sinna manna gegn Snæfelli í kvöld og sagði lið sitt vera á uppleið. Liðið væri að venjast nýjum sóknarleik og aðferðum í vörn.
Logi játti því að Njarðvíkur-liðið skorti að vissu leyti einbeitingu á lokamínútum leikja en minnti um leið á að liðið væri þó að klára leikina með sigri.