Pétur hættir með Skallagrím

Pétur Ingvarsson ræðir við leikmenn Skallagríms. Hann er nú hættur …
Pétur Ingvarsson ræðir við leikmenn Skallagríms. Hann er nú hættur störfum. Ljósmynd/Skallagrimur.is

Pétur Ingvarsson er hættur störfum sem þjálfari úrvalsdeildarliðs Skallagríms í körfuknattleik en þetta kemur fram á vef félagsins. Þar er sagt að nýr þjálfari verði kynntur til leiks síðar í dag.

Borgnesingar hafa verið í basli það sem af er keppnistímabilinu og aðeins unnið tvo af fyrstu ellefu leikjum sínum. Þeir sitja á botninum með 4 stig ásamt Fjölni og ÍR þegar mótið er hálfnað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert