Pavel Ermolinskij úr KR og Hildur Sigurðardóttir, leikmaður Snæfells, voru valin bestu leikmenn Dominos-deildar karla og kvenna á lokahófi og uppskeruhátíð körfuknattleiksfólks sem haldið var í húsnæði ÍSÍ í Laugardal í hádeginu.
Ari Gylfason, FSu var valinn besti leikmaður 1. deildar karla en af leikmönnum 1. deildar kvenna þótti Bryndís Hanna Hreinsdóttir, Stjörnunni, skara framúr.
Úrvalslið Dominos-deildar karla:
Grétar Ingi Erlendsson, Þór Þ.
Darrel Lewis, Tindastóli
Helgi Már Magnússon, KR
Logi Gunnarsson, Njarðvík
Pavel Ermolinskij, KR
Þjálfari ársins: Israel Martin, Tindastóli
Varnarmaður ársins: Darri Hilmarsson, KR
Besti erlendi leikmaður: Michael Craion, KR
Besti ungi leikmaður: Pétur Rúnar Birgisson, Tindastóli
Úrvalslið Dominos-deildar kvenna:
Bryndís Guðmundsdóttir, Keflavík
Sara Rún Hinriksdóttir, Keflavík
Petrúnella Skúladóttir, Grindavík
Gunnhildur Gunnarsdóttir, Snæfelli
Hildur Sigurðardóttir, Snæfelli
Þjálfari ársins: Ingi Þór Steinþórsson, Snæfelli
Varnarmaður ársins: Gunnhildur Gunnarsdóttir, Snæfelli
Beseti erlendi leikmaður: Kristen McCarthy, Snæfelli
Besti ungi leikmaður: Sara Rún Hinriksdóttir, Keflavík
Úrvalslið 1. deildar karla:
Hreinn Gunnar Birgisson, Hetti
Fannar Freyr Helgason, ÍA
Örn Sigurðarson, Hamri
Hlynur Hreinsson, FSu
Ari Gylfason, FSu
Þjálfari ársins: Viðar Hafsteinsson, Hetti
Besti ungi leikmaður: Erlendur Ágúst Stefánsson, FSu
Úrvalslið 1. deildar kvenna:
Bríet Lilja Sigurðardóttir, Tindastólik
Eva Margrét Kristjánsdóttir, KFÍ
Eva María Emilsdóttir, Stjörnunni
Erna Hákonardóttir, Njarðvík
Bryndís Hanna Hreinsdóttir, Stjörnunni
Þjálfari ársins: Sævaldur Bjarnason, Stjörnunni
Besti ungi leikmaður: Eva Margrét Kristjánsdóttir, KFÍ
Besti dómari karla og kvenna:
Sigmundur Már Herbertsson
Prúðustu leikmenn:
Hildur Sigurðardóttir, Snæfelli
Darri Hilmarsson, KR