Jón Arnór hættir hjá Unicaja

Jón Arnór Stefánsson í leiknum gegn Barcelona á síðasta tímabili.
Jón Arnór Stefánsson í leiknum gegn Barcelona á síðasta tímabili. Ljósmynd/Skúli B. Sigurðsson

Jón Arnór Stefánsson, landsliðsmaður í körfuknattleik mun ekki leika áfram með liði Unicaja Málaga í efstu deild spænska körfuboltans á komandi leiktíð. Frá þessu greindi Jón Arnór Á Twitter-aðgangi sínum í kvöld.

Unicaja Málaga stóð sig vel á síðustu leiktíð og Jón fékk stórt hlutverk hjá liðinu þó hann hafi ekki samið fyrr en deildin var að hefjast.

Liðið hafnaði í 3. sæti í deildakeppninni með jafnmörg stig og Barcelona sem varð í 2. sæti. Barca sló Málaga síðan út í undanúrslitum eftir spennandi oddaleik. Málaga komst auk þess í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar

Tíst Jóns frá því í dag:

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert