Körfuknattleiksmaðurinn og KR-ingurinn Helgi Már Magnússon mun leggja skóna á hilluna eftir tímabilið og flytjast búferlum til Washington í Bandaríkjunum. Þetta kemur fram á vefnum Karfan.is í dag.
Helgi hefur verið einn af burðarásunum í KR-liðinu undanfarin ár en hann hefur einnig leikið í háskólaboltanum í Bandaríkjunum auk þess sem hann spilaði í Svíþjóð um skeið.
Kona Helga, Guðrún Sóley Gunnarsdóttir, fyrrum landsliðskona í knattspyrnu fékk starf og mun fjölskyldan búa að sögn Helga í landinu í 2 og hálft ár. Aðspurður reiknar Helgi ekki með því að spila á ný með KR eftir tímann úti.
Myndskeið sem Skúli Sigurðsson hjá Körfunni tók við Helga má sjá hér að neðan.