Ólíklegt að Pavel nái oddaleiknum

KR leyfði leikstjórnandanum Ægi Þór Steinarssyni að fara fyrir úrslitakeppnina, …
KR leyfði leikstjórnandanum Ægi Þór Steinarssyni að fara fyrir úrslitakeppnina, og nú er Pavel Ermolinskij meiddur. mbl.is/Golli

Pavel Ermolinskij, leikstjórnandi KR-inga, meiddist í upphitun fyrir leikinn við Njarðvík í undanúrslitum Dominos-deildar karla í körfubolta í gærkvöld.

Pavel meiddist í kálfa og gat ekki tekið þátt í leiknum. Það verður að teljast afar ólíklegt að hann verði með í oddaleiknum annað kvöld, þrátt fyrir að ekki sé vitað hversu alvarleg meiðslin nákvæmlega eru.

„Hann verður í meðferð í dag og svo verður staðan tekin á honum á morgun. Maður er ekki mjög bjartsýnn,“ sagði Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari KR, við mbl.is nú í morgun.

Pavel Ermolinskij meiddist í kálfa.
Pavel Ermolinskij meiddist í kálfa. mbl.is/Golli
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert