Ægir Þór Steinarsson var maður leiksins í 76:70-sigri Castello á Prat í spænsku B-deildinni í körfubolta í kvöld. Hann skoraði 16 stig og tók sex fráköst. Hann var stigahæsti maður vallarins og með flesta framlagspunkta síns liðs.
Prat er enn í toppsæti deildarinnar með 25 stig, þrátt fyrir tapið. Ægir og félagar eru í 7. sæti með 21 stig og í baráttu um að komast upp um deild.