Bandaríski körfuknattleiksmaðurinn Jordan Mickey skoraði í hæsta máta óvenjulega körfu fyrir rússneska liðið Khimki í gær þegar það mætti Buducnost Podgorica frá Svartfjallalandi í Evrópudeildinni.
Mickey skallaði boltann í körfu Svartfellinganna og það gerist ekki oft í þessari íþrótt. En líkast til var það þó ekki ætlunin, eins og sjá má á meðfylgjandi myndskeiði. Þess má geta að Mickey og félagar unnu öruggan sigur í leiknum, 85:69.
Jordan Mickey scored a great header for Khimki Moscow tonight. Thing is...he was playing basketball 😂😂 https://t.co/eq4T1lCDpO
— Andy West (@andywest01) November 21, 2018