„Við getum verið stoltir eftir svona leik. Sigurinn var aldrei í hættu þrátt fyrir að við misstum niður nokkuð gott forskot okkar af og til. Við þurfum að læra af því en það sem var jákvætt var að vörnin var góð,“ sagði Ólafur Stefánsson eftir sigurleikinn gegn Rússum í Peking.
Hann skoraði 3 mörk úr 8 skottilraunum í 33:31-sigri liðsins.