Zeitz fékk rauða spjaldið fyrir óþverrabrot

Snorri Steinn Guðjónsson skoraði 7 mörk á fyrstu 25 mínútunum …
Snorri Steinn Guðjónsson skoraði 7 mörk á fyrstu 25 mínútunum í dag. mbl.is/Brynjar Gauti

Christian Zeitz, stórskyttan í þýska landsliðinu í handknattleik, fékk rauða spjaldið eftir 25 mínútna leik gegn Íslandi í dag fyrir óþverrabrot á Snorra Steini Guðjónssyni en hann barði Snorra í höfuðið. Snorri hafði þá skorað 7 af fyrstu 14 mörkum Íslands og komið liðinu yfir í fyrsta sinn, 14:13.

Zeitz kemur því ekki meira við sögu í leiknum í dag en Ísland var yfir, 16:13, eftir 27 mínútna leik gegn þýsku heimsmeisturunum.

Snorri fór af velli en kom fljótlega til leiks á ný eftir aðhlynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert