Arnór Atlason meiddist í baki í leiknum gegn Suður-Kóreu í gær og er ekki komið í ljós hvort meiðsli hans séu alvarleg. Einar Þorvarðarson flokksstjóri íslenska landsliðsins í handknattleik á Ólympíuleikunum í Peking sagði í gærkvöld að ekki væri hægt að meta stöðuna á skyttunni fyrr en eftir æfingu liðsins í dag, sem hófst klukkan 6 í morgun að íslenskum tíma.
Sjá nánar um Arnór í Morgunblaðinu í dag, og ítarlega umfjöllun um Íslendinga á Ólympíuleikjunum í Peking í 8 síðna íþróttablaði. Það er meira í Mogganum!