Ólympíumeistararnir í undanúrslit

Hart barist í leik Bandaríkjanna og Kanada.
Hart barist í leik Bandaríkjanna og Kanada. Reuters

Natasha Kai tryggði ólympíumeisturum Bandaríkjanna sigurinn á Kanada í viðureign liðanna í átta liða úrslitum í knattspyrnu kvenna á ólympíuleikunum í Peking. Staðan eftir venjulegan leiktíma var jöfn, 1:1, en ólympíumeistararnir náðu að knýja fram sigur í framlengingunni.

Gera þurfti tæplega tveggja klukkustunda hlé á leiknum vegna veðurs en þrumuveður var í Shanghai og fylgdu eldingar í kjölfarið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert