Besti árangur Íslendings á Ólympíuleikum

Hákon Þór Svavarsson í eldlínunni í dag.
Hákon Þór Svavarsson í eldlínunni í dag. mbl.is/Kristinn Magnússon

Hákon Þór Svavarsson hefur lokið leik í leirdúfuskotfimi með haglabyssu á sínum fyrstu Ólympíuleikum en seinni dagur undanrásanna fór fram í Châteauroux í dag.

Hákon varð í 23. sæti af 30 keppendum með 116 stig. Aðeins sex efstu fóru í úrslit. 

Fyrstu þrjár umferðir undanrásanna fóru fram í gær þegar Hákon skaut 75 skot og hitti úr 69. Hann skaut síðan 50 skotum til viðbótar í dag í tveimur umferðum.

Hákon Þór Svavarsson
Hákon Þór Svavarsson Kristinn Magnússon

Í fyrri umferðinni hitti Hákon úr 22 skotum af 25 og var því samtals með 91 stig fyrir síðustu umferðina og í 26. sæti.

Hann gerði sér svo lítið fyrir og fékk fullt hús stiga, 25 stig, í lokaumferðinni og lauk því keppni með 116 stig, sem er besti árangur Íslendings í greininni á Ólympíuleikum. 

Alfreð Karl Alfreðsson fékk 111 stig er hann hafnaði í 47. sæti á Ólympíuleikunum í Sydney.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka