"Valsarar nammi namm. Valsarar nammi, nammi, namm," ómaði í búningsklefa ÍR-inga eftir sigurinn á Valsmönnum í Austurbergi í gær, 26:25. Júlíus Jónasson, þjálfari og leikmaður ÍR, hafði þó öllu hægara um sig en lærisveinarnir enda Júlíus að berjast við sína gömlu félaga og við fóstbróður sinn, Geir Sveinsson, en saman léku þeir um árabil í búningi Vals og landsliðsins.
Júlíus var hrærður og sérlega stoltur af strákunum sínum þegar Morgunblaðið náði að draga hann út í sigurlátum ÍR-inga en á sínu öðru ári sem þjálfari Breiðholtsliðsins eru ÍR-ingar komnir í úrslitin um Íslandsmeistaratitilinn sem þeir unnu síðast og í eina skiptið í sögu félagsins árið 1946, eða fyrir 57 árum.
Markvarsla Hallgríms var þó líklega það sem skipti sköpum," sagði Júlíus.
Hvað var upp á lagt að gera í síðustu sókninni?
"Við ákváðum að setja upp leikkerfi sem gekk ekki alveg upp. Boltinn hrökk til Óla og það var ekki annað fyrir hann að gera að reyna skot. Roland hefur líklega blindast af varnarmönnum sínum en auðvitað var heppnisstimpillinn yfir markinu. Við áttum samt að vera búnir að afgreiða Valsmennina og þurfum ekki að koma okkur í þessa stöðu. En auðvitað voru menn orðnir lúnir og til að mynda var Einar Hólmgeirsson að spila sinn fimmta leik á réttri viku. Hann var í aðahlutverki með U-20 ára liðinu í Búlgaríu um páskana og er í aðalhlutverki hjá okkur."
Óraði þig fyrir því þegar þú varst að hefja undirbúninginn í sumar að þið kæmust í þá stöðu að leika til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn?
"Já, ég gerði það. Ég hef mikla trú á þessum drengjum. Við tókum tímbilið í tröppugangi. Við settum stefnuna innan hópsins á sæti í undanúrslitunum og að ná lengra en í fyrra. Nú hefur það tekist og ég sé fyrir mér skemmtilegar vikur framundan. Nú er áfram krefjandi vinna hjá mér og strákunum. Fyrst við erum komnir í þessa stöðu stefnum við alla leið og það er vel þess virði að leggja á sig erfiði nokkrar vikur til viðbótar."
Hvernig er tilfinningin fyrir þig sem Valsmann í hjarta þínu að leggja þá að velli í þessari stöðu?
"Það er ekkert svo roslega erfitt fyrir mig þó svo að ég sé fæddur og uppalinn í Val. Ég er í vinnu hjá ÍR og auðvitað reyni ég að standa mig sem best. Ég átti frábær ár hjá Val og fór frá félaginu til að fara út þjálfun. Örlögin réðu því að ég þurfti að glíma við Val í undanúrslitunum og þannig gerist þetta bara í sportinu. Ég get vel skilið svekkelsið hjá mínum gömlu félögum. Það er alltaf leiðinlegt að falla út úr úrslitakeppninni og ennþá meira svekkjandi að tapa á síðustu sekúndum leiks. Ég þekki strákana í Val út í gegn og ég og Geiri erum góðir félagar enda búnir að starfa lengi saman. Ef Geiri er tilbúinn að lauma að mér einhverjum góðum ráðum fyrir slaginn á móti Haukum tek ég vel á móti þeim. Geir er mikill keppnismaður eins og ég og ég get vel skilið sárindi hans. Þetta var hins vegar heiðarleg barátta inni á vellinum og eftir á erum við góðir vinir sem og áður."
Hvernig líst þér á rimmurnar við Hauka?
"Líkt og fyrir einvígið við Val verðum við minna liðið í baráttunni við Hauka. Hjá mér eru allir að fara út í svona slag í fyrsta skipti á meðan Haukarnir hafa gengið í gegnum þetta nokkrum sinnum áður. Við ætlum ekki að bera neina virðingu fyrir Haukunum. Við vitum að þeir hafa á að skipa mjög sterku liði en ég held að við höfum sýnt og sannað að við höfum vel burði til að veita þeim harða keppni. Það verður mikil tilhlökkun fyrir strákana að fá að upplifa stemninguna sem fram undan er."
ÍR hefur legið lengi í dvala svo þessi árangur ykkar á tímabilinu hlýtur að vera félaginu mikil lyftistöng?
"Það er engin spurning. Það er meira en hálf öld síðan ÍR varð síðast Íslandsmeistari svo það er löngu kominn tími á að félagið láti að sér kveða. Ég finn fyrir miklum stuðningi hjá Breiðhyltingum gagnvart félaginu og yngri kynslóðin tekur árangri okkar með miklum fögnuði. Ég er með framtíðarlið í höndunum. Uppistaðan er ungir og efnilegir strákar sem eru tilbúnir að fórna sér í verkefnið. Þeir hafa verið sigursælir í gegnum yngri flokkana hjá ÍR og 90% af liðinu eru hreinir ÍR-ingar. Þetta hjálpar mikið til. Samstaðan er gríðarlega góð og strákarnir vita hvað þarf til að vinna."
Þú tókst við ÍR-liðinu fyrir síðustu leiktíð. Hefur þú komið því í fremstu röð fyrr en þú áttir von á?
"Nei, kannski ekki. Ég sá í fyrra að við áttum fullt erindi í toppliðin en skorti herslumuninn. Ég finn gríðarlega mikinn mun á liðinu í ár og í fyrra. Strákarnir eru ári eldri og reynslan er farin að segja til sín. Það hefur tekið smátíma fyrir þá að innbyrða hvað ég hef haft fram að færa. Ég sagði fyrr í vetur að ÍR-liðið gæti orðið meistari í ár og ef ekki í ár þá á næstu árum. Ég stend fyllilega við þessi orð nema að ég ætla að taka á móti titlinum í ár," sagði Júlíus.
Guðmundur Hilmarsson skrifar