Nú er að hefjast í Laugardalshöll kraftlyftingakeppni Reykjavíkurleikanna. Keppnin er sýnd í beinni útsendingu á rás 2 á SportTV. Á meðal keppenda er heimsmeistarinn í -83 kg flokki, Kjell Egil Bakkelund frá Noregi, og sigursælasti íþróttamaður Noregs á alþjóðamótum, Inger Blikra.
Kraftlyftingakeppnin er Íslandsmeistaramót í bekkpressu 2014 og verða Íslandsmeistarar verðlaunaðir í öllum þyngdarflokkum karla og kvenna. Einnig verður keppt í stigakeppni óháð þyngdarflokkum. Erlendu keppendurnir geta keppt um stigaverðlaun, en auðvitað ekki um Íslandsmeistaratitlana. Smellið hér til að skoða lista yfir keppendur.