Keppni í áhaldafimleikum á Reykjavíkurleikunum fór fram í fimleikasal Ármanns, Laugabóli, í dag. Í karlaflokki sigraði Jón Sigurður Gunnarsson en hann hlaut 71,917 stig. Á meðfylgjandi myndskeiði má sjá vel heppnaðar gólfæfingar Jóns Sigurðar á mótinu í dag.
Í öðru sæti í karlaflokki var Hróbjartur Pálmar Hilmarsson með 65,601 stig. Úrslit í öllum flokkum og áhöldum karla og drengja má finna hér.
Sigurvegari í kvennaflokki var rússneska fimleikakonan Irena Szonova.