Samkvæmt breytingu á lögum nr. 64/1994 um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og spendýrum og reglugerð 424/2012 er veiðimönnum hreindýra og leiðsögumönnum þeirra skylt að standast verklegt skotpróf áður en haldið er til hreindýraveiða.
Próf eru hafin á nokkrum stöðum á landinu og alls hafa nú þegar 17 framkvæmdaraðilar tilnefnt samtals 60 prófdómara skotprófa. Allt stefnir því í að meira eða minna öll skotfélög sem hafa yfir aðstöðu að ráða komi til með að bjóða upp á skotpróf.
Meira á www.ust.is
það er klárt mál að sitt sýnist hverjum um þetta, en hafa skal í huga að þetta er viðtekin venja í mörgum löndum. það er nokkuð öruggt að skyttur landsins koma til með að spjalla aðeins um þetta næstu daga og vikur.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |