Sleppti 160 þúsund seiðum í sjó

Tálknafjörður.
Tálknafjörður. www.mats.is

Níels Ársælsson útgerðarmaður segist hafa sleppt 160 þúsund laxaseiðum af norskum stofni í sjó við Gileyri á Tálknafirði árið 2002. Greint er frá þessu í Fréttablaðinu í dag.

Þar kemur fram að Níels vilji ekki ræða við blaðið en bráðabirgðaniðurstöður rannsóknar Hafrannsóknastofnunar gefa skýr merki um erfðablöndun í tveimur laxastofnun í Botnsá og Sunndalsá en báðar árnar eru á svæðinu.

Guðni Guðbergsson, forstöðumaður ferskvatnslífríkissviðs, segir í samtali við Fréttablaðið mögulegt að áhrifa sleppingarinnar sé þarna að gæta. Fara þurfi aftur yfir gögnin í ljósi nýrra upplýsinga.

„Árið 2001 keypti félagið Eyrarfiskeldi hf., í eigu Níels Ársælssonar, um 160 þúsund laxaseiði af norskum stofni. Þau komu til eldishússins við Gileyri á Tálknafirði í september 2001 og áttu að fara í sjókvíar sumarið eftir. Slátra átti fiskinum í desember 2003 og gert var ráð fyrir að aflinn yrði um 600 til 700 tonn. Þessar áætlanir urðu að engu þegar norskur samstarfsaðili Eyrar varð gjaldþrota.

Þrátt fyrir tilraunir fékk félagið hvorki lánsfjármagn né nýtt hlutafé til kaupa á eldiskvíum. Um mitt ár 2002 þraut fjármagnið og eftir að laxaseiðin höfðu verið í þriggja mánaða svelti ákvað Níels að hleypa seiðunum 160 þúsund í sjó við Gileyri í gegnum botnlokur. Seiðin voru um 350 til 600 grömm þegar þeim var sleppt,“ segir í Fréttablaðinu í dag.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert