Magnús Kristinsson kaupir fyrir 1.885 milljónir í Straumi

Tvö félög í eigu Magnúsar Kristinssonar stjórnarmanns í Straumi Burðarási, Smáey og MK-44, keyptu í dag hvort um sig 50 milljónir hluta í Straumi Burðarási á genginu 18,85. Er kaupverð bréfanna því 1.885 milljónir króna.

Eftir viðskiptin er Smáey komin með 5,44% í Straumi Burðarási fjárfestingarbanka. Straumur Burðarás kynnti afkomu síðasta árs í dag og nam hagnaður félagsins 26,7 milljörðum króna.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK