Dagsbrún hefur sent frá sér afkomuviðvörun og segir ljóst, að rekstraráætlanir sem gerðar voru við kaup á Daybreak Acquisitions Ltd., móðurfélagi Wyndeham press Group PLC í Bretlandi, muni ekki standast fyrir árið 2006. Megi skýra það með aukinni samkeppni og mikilli samþjöppun fyrirtækja á þessu sviði í ljósi breytinga í starfsumhverfi á breskum prentmarkaði.
Stjórn Dagsbrúnar hefur ákveðið að ganga til viðræðna við mögulega kaupendur um sölu á meirihluta hlutafjár í Daybreak Acquisitions. Hefur Dagsbrún ráðið fyrirtækjaráðgjöf Landsbanka Íslands til aðstoðar við söluna. Telur stjórn Dagsbrúnar rétt að gera ráð fyrir 1,5 milljarða króna varúðarfærslu vegna eignarhlutar félagsins í Daybreak Acquisitions.
Í tilkynningu frá Dagsbrún er bent á, að í skiptingaráætlun Dagsbrúnar þann 12. september síðastliðinn, hafi viðskiptavild að fjárhæð 1 milljarður króna verið afskrifuð í kjölfar virðisrýrnunarprófs á eign félagsins í Kögun hf. Þá hafi fallið til einskiptiskostnaður vegna skiptingar og endurskipulagningar félagsins. Loks sé rekstur 365 miðla ehf. undir áætlunum fyrstu 9 mánuði ársins.
Í tilkynningunni segir Þórdís Sigurðardóttir, stjórnarformaður Dagsbrúnar, þó útlitið fyrir rekstur fjarskipta- og fjölmiðlahluta Dagsbrúnar í framtíðinni vera gott. Sala á hlut félagsins í Wyndeham myndi létta mikið á skuldsetningu samstæðunnar og skerpa áherslur í rekstrinum. Þá sé stefnt að því að selja allan hlut félagsins í Wyndeham á næstu 24 mánuðum.
Dagsbrún birtir 9 mánaða uppgjör þann 29. nóvember.