Hannes Smárason er maður ársins 2006 í viðskiptalífinu samkvæmt niðurstöðu dómnefndar Markaðarins, viðskiptablaðs Fréttablaðsins sem kom út í dag. Sala Björgólfs Thors Björgólfssonar á tékkneska símafélaginu cRA voru valin viðskipti ársins og verstu viðskipti ársins voru valin kaup Dagsbrúnar á Wyndeham.
Við val á manni ársins og bestu og verstu viðskiptum ársins greiddi vel á annan tug sérfræðinga í viðskiptalífinu atkvæði, að því er segir í tilkynningu.