Fríverslunarsamningur við Egyptaland

Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra.
Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra.

Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, undirritaði í dag fríverslunarsamning milli EFTA-ríkjanna og Egyptalands í Davos í Sviss. Fríverslunarsamningurinn nær fyrst og fremst til vöruviðskipta. Ísland mun fá markaðsaðgang fyrir lifandi hross til Egyptalands og tollkvóta fyrir lambakjöt og fiskafurðir.

Samkvæmt samningnum fella Egyptar niður tolla á vörur aðrar en landbúnaðarvörur í áföngum. Samningurinn felur í sér tollkvóta fyrir flestar mikilvægustu sjávarafurðir Íslands. Kvótarnir stækka eftir ákveðnu fyrirkomulagi á sex ára tímabili sem að lokum leiðir til fullrar fríverslunar.

Tollar á tilteknum landbúnaðarvörum eru lækkaðir eða felldir niður með tvíhliða samningum milli Egyptalands og hvers EFTA-ríkis fyrir sig. Á móti fær Ísland markaðsaðgang fyrir lifandi hross til Egyptalands og 2000 tonna tollkvóta fyrir lambakjöt. Ísland veitir tollfrjálsan aðgang fyrir nokkrar mikilvægar útflutningsvörur Egypta á sviði landbúnaðar og má þar m.a. nefna ýmiss konar ávexti, grænmeti, plöntur og unnar landbúnaðarvörur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK