Nýr formaður tók hjá Félagi íslenskra stórkaupmanna á aðalfundi félagsins sem haldinn var fyrr í dag. Pétur Björnsson lét af formennsku og við tók Skúli J. Björnsson, framkvæmdastjóri Sportís ehf.
Skúli hefur verið í stjórn FÍS frá árinu 2002, fyrst sem varamaður og síðar sem aðalmaður. Hann hefur verið virkur í æskulýðs-, unglinga- og íþróttastarfi, m.a. formaður bakvarðasveitarinnar þegar Haraldur Örn Ólafsson gekk á Norðurpólinn.