Farið var að skera loðnu í morgun hjá HB Granda á Vopnafirði en Víkingur AK kom í gærkvöld með fullfermi sem veiddist vestan við Eyjar. Verið er að landa úr Faxa á Akranesi og er von á Ingunni þar í kvöld með fullfermi og er hrognataka það einnig í fullum gangi. Sunnuberg landaði á Akranesi í gær og hélt á miðin í gærkvöldi en er nú á leið til Vopnafjarðar með fullfermi.