Krónan styrktist um 0,33% í dag samkvæmt upplýsingum frá Glitni. Gengisvísitalan stóð í 119,5 stigum við upphaf viðskipta í dag en var komin í 119,2 stig þegar viðskiptum lauk. Veltan á millibankamarkaði nam 14,7 milljörðum kr. Gengi Bandaríkjadals er nú 66,48 kr., evran er 87,24 kr. og pundið er 130,02 kr.