Hlutabréf hækkuðu töluvert í Kauphöll Íslands í dag. Úrvalsvísitalan hækkaði um 1,25% og er 7446 stig. Bréf Eimskips hækkuðu um 8,19%, bréf Exista um 2,48%, bréf Straums-Burðaráss um 2,42% og bréf Kaupþings hækkuðu um 2,14% og var lokagengið 1004. Er þetta í fyrsta skipti sem dagslokagengi bréfa bankans endar yfir 1000.
Bréf FL Group lækkuðu um 2,71% og bréf 365 um 1,86%.