Í janúarmánuði voru fluttar út vörur fyrir 19,2 milljarða króna og inn fyrir 26,2 milljarða króna fob (28,4 milljarða króna cif). Vöruskiptin í janúar, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 6,9 milljarða króna. Í janúar 2006 voru vöruskiptin óhagstæð um 10,1 milljarð króna á sama gengi.
Verðmæti vöruútflutnings var 6,4% minna á föstu gengi en á sama tíma árið áður og verðmæti vöruinnflutnings var 14,6% minna á föstu gengi en á sama tíma árið áður, samkvæmt frétt Hagstofu Íslands.