Tap Orkuveitu Reykjavíkur 1.756 milljónir króna

Orkuveita Reykjavíkur var rekin með tapi á síðasta ári.
Orkuveita Reykjavíkur var rekin með tapi á síðasta ári. mbl.is/RAX

Orkuveita Reykjavíkur tapaði 1.756 milljónum króna á síðasta ári en árið 2005 nam hagnaður OR 4.358 milljónum króna. Hagnaður fyrir fjármagnsliði og skatta nam 3.963 milljónum króna samanborið við 3.304 milljónir króna árið 2005. Helsta skýring á þessum mun er gengistap vegna langtímaskulda, samtals 8.141 milljónir króna.

Rekstrartekjur ársins 2006 námu um 18.101 milljón króna en voru um 14.728 milljónir árið 2005. Helstu skýringar á mikilli veltuaukningu eru innkoma fráveitureksturs og aukning á orkuframleiðslu til stóriðju, að því er segir í tilkynningu.

Hagnaður fyrirtækisins fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta, EBITDA, var 8.536 milljónir króna samanborið við 6.540 milljónir króna árið 2005. Afskriftir varanlegra rekstrarfjármuna voru 4.573 milljónir króna árið 2006 en 3.237 milljónir króna árið 2005. Fjármagnsliðir voru neikvæðir um 9.466 milljónir króna árið 2006, en voru jákvæðir um 1.067 milljónir króna árið 2005. Heildareignir 31. desember 2006 voru 137.289 milljónir króna en voru 88.039 milljónir króna 31. desember 2005.

Eigið fé 31. desember 2006 var 66.671 milljón króna en var 48.298 milljónir í 31. desember 2005. Heildarskuldir 31. desember 2006 voru 70.618 milljónir króna en voru 39.741 milljón króna 31. desember 2005. Eiginfjárhlutfall var 48,6% í lok ársins 2006 en var 54,9% í lok 2005.

Með nýjum lögum nr. 50/2005 um skattskyldu orkufyrirtækja verður fyrirtækið skattskylt í samræmi við 2. gr. Laga nr. 90/2003 um tekjuskatt. Lögin koma til framkvæmda við álagningu tekjuskatts á árinu 2007 vegna tekna á árinu 2006. Sá hluti starfsemi OR er lýtur að rekstri vatnsveitu og fráveitu verður þó áfram undanskilinn tekjuskatti. Reiknuð tekjuskattsinneign á árinu 2006 nam 3.779 milljónum króna.

Langtímaskuldir OR eru að stærstum hluta í erlendri mynt. Gengistap Orkuveitu Reykjavikur af langtímaskuldum nam 8.141 milljónum króna á árinu 2006.

Horfur eru góðar um rekstur Orkuveitu Reykjavíkur á árinu 2007, að því er segir í tilkynningu. Umsvif fara vaxandi og fjárfestingar eru miklar. Stærsta einstaka verkefnið er bygging nýrrar virkjunar á Hellisheiði sem mun stórauka eigin orkuvinnslugetu fyrirtækisins. Í ársbyrjun 2007 sameinuðust Orkuveita Reykjavíkur og Hitaveita Rangæinga.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK