Matvara hefur lækkað en veitingar síður

mbl.is/Ómar

Vísitala neysluverðs í mars 2007 lækkaði um 0,34% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis lækkaði um 0,86% frá febrúar. Hagstofan segir, að svo virðist sem lækkun virðisaukaskatts á matvælum, sem tók gildi þann 1. mars sl., hafi skilað sér en virðisaukaskattslækkun á veitingum hafi ekki skilað sér að fullu.

Lækkun vísitölunnar var minni en væntingar voru um en greiningardeildir bankanna spáði frá 0,7-1% lækkun. Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 5,9% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 4,1%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 0,3% sem jafngildir 1,4% verðbólgu á ári (2,9% verðhjöðnun fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Hinn 1. mars lækkaði virðisaukaskattur af matvælum og fleiri vörum og þjónustu. Á þær vörur sem áður lagðist 14% skattur leggst nú 7% og á það við um flestar matvörur, hitunarkostnað, afnotagjöld, bækur o.fl. Virðisaukaskattur af sætindum og drykkjarvörum öðrum um áfengi og veitingum lækkaði úr 24,5% í 7%. Þá voru vörugjöld afnumin af flestum matvælum og tollar á kjöt lækkaðir.

Verð á veitingum hefði átt að lækka um 8,8% en lækkaði um 3,2%

Frá febrúar til mars lækkaði verð á mat og drykkjarvörum um 7,4% (vísitöluáhrif -1,01%) og hefur lækkun virðisaukaskatts á matvælum því skilað sér vel. Áhrif af lækkun vörugjalda og tolla eru hins vegar ekki komin fram. Verð á veitingum lækkaði um 3,2% (-0,15%) en hefði átt að lækka um 8,8% ef lækkun virðisaukaskatts hefði skilað sér að fullu og ekki komið til annarra verðbreytinga, að því er segir í frétt Hagstofu Íslands.

Útsölum er nú víða lokið og hækkaði verð á fötum og skóm um 12,3% (0,49%). Þá jókst kostnaður vegna eigin húsnæðis um 1,3% (0,24%), þar af voru 0,17% áhrif af hækkun markaðsverðs, 0,06% af hækkun vaxta.

Hagstofan birtir nú í fyrsta sinn fastskattavísitölu miðað við að virðisaukaskatti sé haldið föstum eins og hann var í febrúar 2007. Þessi vísitala hækkaði um 1,42% milli mánaða.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK