Síðustu loðnuskip í Eyjaflotanum komu til heimahafnar nú um helgina og auðvitað í brælu, en svo hefur verið oft í þessa tvo mánuði sem loðnutörnin hefur staðið. Loðnuskipin í Eyjum eru 11 talsins og náðu þau að mestu að veiða sinn kvóta. Á myndinni sést Sighvatur Bjarnaso VE koma til hafnar í Eyjum í gær í ólgusjó.