Landsframleiðslan á árinu 2006 varð 1142 milljarðar króna og jókst að raungildi um 2,6% frá fyrra ári, samkvæmt upplýsingum frá Hagstofunni. Þessi vöxtur kemur í kjölfar 7,2% vaxtar á árinu 2005. Á fjórða ársfjórðungi 2006 er landsframleiðsla talin hafa vaxið um 2,5% að raungildi frá sama tíma árið áður. Þjóðarútgjöld jukust hins vegar meira, eða um 3,2% og var því enn halli í viðskiptum við útlönd.
Fjármálaráðuneytið gerði í vetrarskýrslu sinni ráð fyrir að hagvöxtur á síðasta ári hefði verið 2,5% og að hann verði 2,2% á þessu ári og 3,1% á því næsta.
Hagstofan segir, að vöxt landsframleiðslunnar á liðnu ári megi, líkt og undanfarin þrjú ár, öðru fremur rekja til aukinnar einkaneyslu og fjárfestingar en á móti vegi aukinn innflutningur, langt umfram aukningu á útflutningi.
Laun- og fjármagnsgjöld til útlanda jukust mun meira en nam aukningu launa- og fjármagnstekna frá útlöndum og þrátt fyrir jákvæða þróun viðskiptakjara dragast þjóðartekjur saman um 1,7%