Tap á rekstri RÚV 420 milljónir á síðasta ári

Húsnæði Ríkisútvarpsins í Efstaleiti í Reykjavík.
Húsnæði Ríkisútvarpsins í Efstaleiti í Reykjavík. mbl.is/Árni Sæberg

Tap á rekstri Ríkisútvarpsins var 420 milljónir króna á síðasta ári en var 196 milljónir árið áður. Í tilkynningu frá RÚV segir, að verri afkomu megi rekja til hækkunar fjármagnsgjalda og hækkunar á dagskrárefni vegna óhagstæðrar gengisþróunar auk þess sem afnotagjöld hafi ekki fylgt verðlags- og launaþróun.

Í tilkynningunni segir, að upphaf rekstrarvanda stofnunarinnar megi rekja meira en fimm ár aftur í tímann þegar afnotagjöld fylgdu ekki almennri verðlagsþróun auk þess sem auknar skuldbindingar voru lagðar á stofnunina. Muni þar mestu um viðbótarframlag í lífeyrissjóð opinberra starfsmanna, sem hafi komið til af kröfu ríkisins, að núvirði um 2730 milljónir. Þetta hafi haft í för með sér umtalsvert hærri fjármagnskostnað hjá stofnuninni. Sífelldur rekstrarvandi hafi orðið til þess að dregið hefur úr fjárfestingum, en árið 2006 voru þær 211 milljónir sem sé engan veginn nóg til þess að viðhalda lágmarksbúnaði.

Rekstrartekjur Ríkisútvarpsins á árinu 2006 voru 3867 milljónir og rekstrargjöld voru 3670 milljónir Hagnaður af rekstri fyrir afskriftir var 196 milljónir samanborið við 271 milljónir árið á undan. Afskriftir fastafjármuna voru 238 milljónir og lækkuðu um 20 milljónir á milli ára. Hrein fjármagnsgjöld jukust hins vegar um 169 milljónir á milli ára og námu 378 milljónum árið 2006.

Fjöldi starfsmanna var að meðaltali 340 samanborið við 317 árið áður. Aukningin skýrist af því að verktakar voru gerðir að launþegum, að sögn stofnunarinnar. Í upphafi árs var eigið fé neikvætt um 186 milljónir en í lok árs var það neikvætt um 606 milljónir.

Ríkisútvarpinu verður um mánaðamótin breytt í opinbert hlutafélag. Samhliða því verða eignir endurmetnar og eiginfjárstaðan bætt með framlagi úr ríkissjóði.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK