Krónan veiktist um 0,54% í dag, samkvæmt upplýsingum frá Glitni. Við upphaf viðskipta var gengisvísitalan 119,45 stig, en við lokun var hún 120,1 stig. Velta á millibankamarkaði var 24,9 milljarðar. Gengi Bandaríkjadals er nú 66,10 krónur, evru 88,4 og pundsins 130,80.