Vörumerkið Esso verður ekki lengur notað á Íslandi

Ákveðið hefur verið að hætta að nota alþjóðlega vörumerkið Esso á Íslandi en það hefur verið notað hér á landi í 60 ár. Er þetta gert í kjölfar sameiningar á rekstri Olíufélagsins, Bílanausts og fleiri fyrirtækja í eigu eignarhaldsfélagsins BNT.

Í fréttatilkynningu frá BNT segir að frá og með miðjum apríl verði þjónustustöðvar sem áður voru reknar undir merkjum Esso reknar undir nýju heiti en ekki er gefið upp hvert það er. Í fréttum Sjónvarpsins um helgina sagði, að nafnið yrði Naust.

Merkingar með Esso-nafninu munu einnig hverfa af birgðastöðvum og eldsneytisdælum um land allt. Samtímis verður endurnýjaður samningur við ExxonMobil um innflutning og sölu á Esso- og Mobil-smurolíu á landinu.

Vörumerkin Olíufélagið, Bílanaust, Gúmmívinnustofan, Kúlulegusalan, Ísdekk, Hjólbarðahöllin, Bæjardekk Mosfellsbæ, Dekkið í Hafnarfirði, Hjólbarðaviðgerðin við Dalbraut og Hjól-Vest við Ægisíðu heyra því brátt fortíðinni til.

„Við sameininguna verður til nýtt fyrirtæki sem veita mun fjölbreyttari þjónustu en þau fyrirtæki sem það er sett saman úr. Í okkar huga eru þetta það mikil tímamót að ákveðið var að kveðja nöfn gömlu fyrirtækjanna og leggja af stað í þessa ferð undir nýjum merkjum.

Við sjáum nú eitt öflugasta verslunar- og þjónustufyrirtæki landsins verða til, eitt af 10 stærstu fyrirtækjum landsins með 35 milljarða veltu, um 730 starfsmenn og 115 útsölustaði um allt land," segir Hermann Guðmundsson, forstjóri sameinaðs félags.

Tilkynnt var um fyrirhugaðan samruna á rekstri fyrirtækjanna í nóvember og hafa starfsmenn þeirra unnið að sameiningunni í vetur. Flutt verður í nýjar höfuðstöðvar 19. apríl næstkomandi.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK