Michael Tanchuck, sem gegnt hefur stöðu forstjóra Norðuráls frá því á síðasta ári, hefur verið ráðinn forstjóri bandaríska álfyrirtækisins Ormet Corporation í Ohio. Fram kemur á heimasíðu Norðuráls, að nýr forstjóri verði ráðinn innan skamms en á meðan muni Nelson Dube stýra daglegum rekstri álversins á Grundartanga.