Hlutabréf héldu áfram að hækka í íslensku OMX kauphöllinni í dag og fór hltuabréfavísitalan í fyrsta skipti yfir 7800 stig; endaði í 7827 stigum eftir 1,14% hækkun í dag. Bréf Kaupþings hækkuðu um 2,25%, bréf Exista um 1,68% og bréf FL Group um 1,34%. Bréf Actavis lækkuðu um 1,27% og Atorku um 0,72%.