Coca-Cola, mesti gosdrykkjaframleiðandi heims jók hagnað sinn um 14% á fyrsta ársfjórðungi. Sala á gosdrykkjum fyrirtækisins hefur aukist um 17% frá því um árámót og voru tekjur á fyrstu þremur mánuðum ársins 1,26 milljarðar Bandaríkjadala, eða 54 sent á hlut.
Hlutabréf í Coca-Cola hækkuðu í kjölfar fregnanna, um 98 sent og standa nú í 51,25 dölum.