Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 2,4%

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 2,4% á milli mánaða.
Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 2,4% á milli mánaða. mbl.is

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 321,8 stig í mars 2007 (janúar 1994=100) og hækkaði um 2,4% frá fyrra mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði hún um 5,1%, síðastliðna 6 mánuði hefur hún hækkað um 2,8% og hækkun síðastliðna 12 mánuði var 5,8%.

Fram kemur í frétt frá Fasteignamati ríkisins að vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýni breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir stærð og hvort það telst fjölbýli eða sérbýli. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 9 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 24 mánuði.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK