Milestone ehf. keypti í dag ráðandi hlut í sænska fjármálafyrirtækinu Invik & Co. AB, eða 26%, og gerði öðrum hluthöfum jafnframt yfirtökutilboð. Stjórn Invik & Co mælir með yfirtökutilboðinu. Heildarvirði viðskiptanna eru um 70 milljarðar íslenskra króna og er þetta ein stærsta yfirtaka sem íslenskt fyrirtæki hefur ráðist í.
Milestone er eignarhaldsfélag Karls Wernerssonar og systkina. Karl segir í tilkynningu, að félagið líti á yfirtökuna sem einstakt tækifæri til að skjóta styrkari stoðum undir rekstur og efnahag Milestone og treysta til muna stöðu dótturfélaganna Sjóvás og Askar Capital en mikil tækifæri í liggi samþættingu og samvinnu þessara eininga.
Fram kemur í tilkynningunni, að Invik & Co. sé fjármálafyrirtæki með víðtæka starfsemi á sænskum trygginga- og fjármálamarkaði. Fyrirtæið er skráð í Kauphöllinni í Stokkhólmi og stefnir Milestone að því að taka félagið af markaði.
Í tilkynningu segir að Milestone hafi tryggt fjármögnun kaupanna, en fjárfestingabankarnir Bear Stearns og Morgan Stanley hafi verið Milestone til ráðgjafar við kaupin og fyrirhugaða yfirtöku og fjármagna hluta kaupverðsins.
Invik & Co rekur tryggingafélögin Moderna Forsäkringar og Moderna Forsäkringar Liv. Milestone segir, að margvísleg tækifæri liggi í auknu samstarfi Sjóvá, dótturfélags Milestone og þessara félaga. Innan Invik & Co. séu einnig Assuransinvest, Banque Invik og Invik Funds, sem falli vel að starfsemi Askar Capital, dótturfélags Milestone.
Heildartryggingaiðgjöld sænsku samstæðunnar námu um 12 milljörðum króna á árinu 2006, eignir í umsýslu í verðbréfasjóðum námu um 162 milljörðum króna og í eignastýringu eru um 98 milljarðar króna.
Með kaupum á Invik & Co. verður ríflega helmingur eigna Milestone erlendis. Milestone seldi nýverið kjölfestuhlut sinn í Glitni banka og eftir kaupin á Invik & Co. mun vægi tryggingastarfsemi og sérhæfðrar fjármálaþjónustu aukast til muna. Heildareignir Milestone verða um 341 milljarður króna að yfirtöku lokinni og starfsmenn innan samstæðunnar verða um 900 talsins.