Baugur Group hf. er að kaupa safn einkarekinna sjúkrahúsa víðsvegar um Bretland ásamt Sir Tom Hunter's West Coast Capital, Bank of Scotland og fasteignafjárfestinum Nick Leslau. Í Sunday Times kemur fram að seljandinn Capio hafi samþykkt yfirtökutilboð á síðasta ári og nú sé komið samþykki frá samkeppnisyfirvöldum.
Kaupverðið er um 1,2 milljarðar punda, jafngildi ríflega 150 milljarða íslenskra króna. Fjármögnun er í gegnum sjóðinn Prestbury sem er í eigu Leslau. Morgan Stanley sér um ráðgjöf.