Iceland skiptir um andlit

Breska blaðið The Sun segir í dag, að verslunarkeðjan Iceland, sem er m.a. í eigu íslenskra fjárfesta, hafi ráðið systurnar Coleen og Bernie Nolan til að vera andlit fyrirtækisins í auglýsingum. Komi þær í stað Kerry Katona, fyrrum söngkonu Atomic Kitten, sem verið hefur andlit Iceland undanfarin tvö ár.

Kerry, sem er 26 ára, hefur leikið jarðbundna móður í auglýsingum Iceland undanfarin tvö ár en er nú sögð vilja verja meiri tíma með ungri dóttur sinni.

Nolansysturnar eru frá Írlandi og hlutu nokkra frægð á áttunda áratug síðustu aldar ásamt þriðju systurinni. Coleen Nolan, sem er 42 ára, er nú sjónvarpsþáttastjórnandi og Bernie, sem er 46 ára, er söngkona.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK