Glitnir banki boðaði í dag umfangsmikla auglýsingaherferð á Bretlandseyjum og ætlar bankinn að leggja áherslu á hraða og sveigjanlega þjónustu. Munu auglýsingarnar einkum birtast í fjölmiðlum, sem leggja áherslu á viðskiptafréttir, svo sem Financial Times og Bloomberg.