Vísitala framleiðsluverðs í maí lækkaði um 2,4% frá fyrri mánuði, samkvæmt útreikningum Hagstofunnar. Frá maí á síðasta ári hefur vísitala framleiðsluverðs lækkað um 2,1%, sjávarafurðir hafa lækkað í verði um 5,2%, afurðir stóriðju hafa hækkað um 3,7% og matvæli um 2,4%.
Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir lækkaði um 4,2% milli apríl og maí, og vísitala fyrir stóriðju lækkaði um 1,2%. Vísitalan fyrir matvæli var óbreytt milli mánaða en vísitala fyrir annan iðnað lækkaði um 2,4% frá apríl. Á sama tíma lækkaði verð á erlendum gjaldmiðlum um 3,4%.
Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands lækkaði um 0,5% milli mánaða en fyrir útfluttar afurðir lækkaði hún um 3,5%.