Glitnir Property Holding AS hefur í dag lokið kaupum á 91% hlut í Leimdörfer Holding AB. Leimdörfer er ráðgjafafyrirtæki á sænska og finnska fasteignamarkaðnum. Fyrir kaupin átti Glitnir Property Holding 100% hlut í Glitnir Property Group, sem er ráðgjafafyrirtæki á norska fasteignamarkaðnum með aðsetur í Ósló, samkvæmt tilkynningu.
Glitnir Property Group leggur áherslu á miðlun, sambankalán og fjármálaráðgjöf í fasteignaviðskiptum.