Lagðar voru inn pantanir í 35 Boeing 787 Dreamliner þotuna í dag, en hún var til sýnis á athafnasvæði Boeing flugvélaverksmiðjanna í Seattle í dag. Alls hafa 677 787 Dreamliner þotur verið pantaðar af 47 flugfélögum. Stefnt er að því að vélin verði sett á markað á næsta ári en henni verður reynsluflogið í ágúst eða september.