Eigendur Toyota á Íslandi kaupa stærstu Toyotusölu Danmerkur

Toyota á Íslandi færir úr kvíarnar.
Toyota á Íslandi færir úr kvíarnar.

M. Kristinsson Danmark A/S, sem er í eigu Magnúsar Kristinssonar eiganda Toyota á Íslandi, hefur fest kaup á danska fyrirtækinu Krogsgaard Jensen, stærsta söluaðila Toyota í Danmörku. Magnús Kristinsson og Kresten Krogsgaard-Jensen, undirrituðu samninga þessa efnis í dag.

Krogsgaard-Jensen er rótgróið fjölskyldufyrirtæki sem hefur selt Dönum bíla í þrjár kynslóðir. Er fyrirtækið stærst og umsvifamest af þeim 30 fyrirtækjum sem selja Toyota bifreiðar í Danmörku á alls 70 stöðum um land allt. Velta fyrirtækisins nam um 5 milljörðum íslenskra króna í fyrra og eru starfsmenn um 130 talsins.

Krogsgaard-Jenssen seldi um 1560 nýja bíla í fyrra sem er um 8% af nýskráðum Toyota bifreiðum í Danmörku. Toyota á Íslandi seldi 5285 nýja bíla á síðasta ári.

M. Kristinsson Danmark A/S eignast 80% í danska fyrirtækinu og fylgja sýningarsalir, verkstæði, og lagerar með í kaupunum. Þá mun fyrirtæki Magnúsar eignast 100% í fasteignafélagi KKJ Ejendommen, og fasteignum sem eru í eigu Krogsgaard Holding. Helstu stjórnendur munu starfa áfram hjá fyrirtækinu. Kaupverðið er trúnaðarmál.

Straumur Danmark hafði milligöngu um viðskiptin og Landsbanki Íslands sá um fjármögnun.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK